Á þessari síðu má finna þau gögn sem Agora vann fyrir Þjóðfund 2010 um stjórnarskrá. Samkvæmt lögunum sem samþykkt voru á Alþingi er Þjóðfundinum ætlað að kalla eftir meginsjónarmiðum og áherslum almennings um stjórnskipan landsins, stjórnarskrá og breytingar á henni. Markmið fundarins er að ræða framtíðarumgjörð samfélagsins og mikilvægustu þætti í stjórnarskrá Íslands.
Aðferðafræði fundarins á að tryggja að niðurstöður endurspegli sjónarmið þeirra sem sækja fundinn, ekki þeirra sem stýra honum. Verkefni lóðs er að sjá til þess að allir við borðið fái jöfn tækifæri til að tjá sig og að tryggja virka hlustun þannig að öll sjónarmið komist að.
Smellið á handbókina til þess að hlaða hana niður. Þessi handbók inniheldur lýsingu á aðferðafræði og leiðbeiningar fyrir lóðsa á Þjóðfundi um stjórnarskrá 6. nóvember 2010.
Heildar verklag fundarins gefur glögga mynd á heildar flæði og hlutverki helstu teyma.
Vinnugögn þátttakenda
- gulir, bleikir, grænir, og fjólubláir miðar sem og hvít A6 rissblöð,
- P-spjald og endurtekningarspjald,
- 7 umslög; merkt gildi/hugsjónir (1. hluti), endurtekning (5. hluti), gögn frá þema (9. hluti), og ábendingar til stjórnlagaþings / alþingis / fjölmiðla / annarra (11. hluti)
- teyjur, bláir punktar og rauðir punktar
- 4 einblöðungar; niðurstöðublað um gildi, setningablað, valin ábending og matsblöð fundar
Hægt er að hlaða niður öllum þessum gögnum hér:
Nánari upplýsingar um hönnun, hugmyndafræði og verklag á fundarferli má senda á Guðjón Má Guðjónsson á gudjon@agora.is


